Tous nos rayons

Déjà client ? Identifiez-vous

Mot de passe oublié ?

Nouveau client ?

CRÉER VOTRE COMPTE
Þrjár smásögur
Ajouter à une liste

Librairie Eyrolles - Paris 5e
Indisponible

Þrjár smásögur

Þrjár smásögur

Guðrún Lárusdóttir

Parution le 03/04/2023

Résumé

Sögurnar þrjár í þessu smásagnasafni Guðrúnar Lárusdóttur (1880 - 1938) komu út á bilinu 1915-1917. Ásta litla, fyrsta sagan, fjallar um unga stúlku sem er við að byrja aftur í skóla að hausti eftir sumarfrí. Hún er vön að ganga í skólann með fína tösku á bakinu. En vinkona hennar, Gerður, hefur nýverið fengið nýja skólatösku ásamt ýmsum öðrum gersemum sem hún geymir í töskunni. Þá verður Ásta afbrýðisöm. Hún hefur ekki fengið jafn skemmtilegt skóladót fyrir nýja árið og þarf að nota gömlu töskuna sína. En Ásta á eftir að læra hvað er nauðsynlegt og hvað er óþarfi, með hjálp kennara síns kemst hún kannski í skilning um hvað skiptir mestu máli að eiga.Önnur sagan fjallar um Einar kaupmann, sem er alvarlegur og ómannblendinn maður. En hann mýkist allur í umgengni við Björgu dóttur sína. Hún er létt í skapi og skemmtilegt barn. Þegar hún eldist flyst hún burt og kannar heiminn upp á eigin spýtur. En sjálfstæði hennar kemur aðeins upp á milli þeirra feðgina. Þau lenda í miklum vandræðum við að greiða úr sambandi sínu og ekki er víst að þeim takist það.Þriðja sagan, Góður vilji, fjallar um Elínu. Hún er saumakona með fötlun og leggur sig alla fram við að vinna fyrir sjálfri sér. Hún veit að sumir eiga um sárt að binda og þykir óbærilegt að hugsa til þess. Hana langar að láta gott af sér leiða og finnst ekkert betra en að gleðja aðra, einkum börn.Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin. Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.

Caractéristiques techniques

  NUMERIQUE
Éditeur(s) Saga Egmont International
Auteur(s) Guðrún Lárusdóttir
Parution 03/04/2023
Contenu ePub
EAN13 9788728569290

Avantages Eyrolles.com

Livraison à partir de 0,01 en France métropolitaine
Paiement en ligne SÉCURISÉ
Livraison dans le monde
Retour sous 15 jours
+ d'un million et demi de livres disponibles
satisfait ou remboursé
Satisfait ou remboursé
Paiement sécurisé
modes de paiement
Paiement à l'expédition
partout dans le monde
Livraison partout dans le monde
Service clients sav@commande.eyrolles.com
librairie française
Librairie française depuis 1925
Recevez nos newsletters
Vous serez régulièrement informé(e) de toutes nos actualités.
Inscription